Friday 27 July 2012

Þegar "heima" verður "heima"

Þegar ákvörðun var tekin að við skyldum flytja til Belgíu og samningar fóru á milli... þá var eitt atriði sem mér fannst skipta miklu máli. Það er lengd samningsins. Ég var alveg harð ákveðin í því að þetta yrðu að vera þrjú ár alla vegana.... eftir alla okkar flutninga hef ég komist að því að það tekur alveg ár að komast inn í hlutina og langaði mig ekki að vera búin að keppast við að koma okkur inn í allt finna út úr hinu og þessu og svo værum við bara næstum að fara þegar allt var að komast á gott ról.
Það er nefnilega einmitt þannig sem það hefur verið líka núna.... við vorum búin að búa hérna í ár í byrjun júlí og núna þegar ég kom heim með krakkana úr litla fríinu okkar í svíþjóð þá fékk ég þessa tilfinningu ahhhhhh nú er ég komin heim. Viktor var veikur og ég þurfti að fara með hann til læknis og það var bara svo gott að vera að fara með hann til okkar læknis sem þekkir okkur best og veit allt um hann og á leiðinni heim þaðan þá bara sló það mig. Núna finnst mér Belgía vera heima...
Við erum reyndar alltaf frekar fljót að aðlagast og komum okkur vel fyrir í húsakynnum okkar en það er samt ekki bara það sem ég á við... heldur heildar pakkinn.... vera með lækni, vita hvert á að leyta ef við erum í vandræðum með eitthvað í húsinu. Barnapía, vinir og fleira og já þessi heima tilfinning.



Annars langar mig að mæla með góðri lesningu fyrir alla.... bæði foreldra og ekki. Bókin hans Hugo Þórissonar, Hollráð Hugaos. Ég las í gegnum hana um daginn og fannst hún góð og athyglisverð, mikið sem hægt er að taka úr henni og heimseta í raunveruleikan þegar verið er að ala upp börn eða bara muna síðan við vorum lítil.

Setning úr bókinni sem mér fannst alveg frábær:
"En höfum hugfast að fötlun barns er afmarkað sérkenni þess, fremur en einkenni þess." Þessi setning finnst mér taka saman það sem ég meina svo oft þegar ég óska þess að fólk geti horft á Viktor sem Viktor og jú hann er með auka litning en ekki bara auka litninginn og svo Viktor. Finnst mér þetta eiga við um alla sem hafa einhverskonar fötlun.


Hér í Belgíu hefur góða verðrið leikið við okkur, svo loksins fékk heimasætan að taka framm laugina síðan í fyrra og göstlast í henni og leika sér. Svo vonum við bara að það verði bara framhald á þessari rjóma blíðu svo við getum haldið áfram að njóta sumarfrísins.

troðslu keppni í garðinum :)

sundkelling

Svona slá vinir okkar garðinn sinn ;) sveitinn





krúttin 

Skúli fúli yfir að fá ekki að borða sand...

Þessi gullklumpur er 16 mánaða í dag:)



S


Thursday 5 July 2012

Drasl = hamingja

Heimilisfaðirinn er ekki mikið heimavið þessa dagana en þegar hann kemur heim rétt um kvöldmat þá hjálpar hann mér við að klára kvöldrútínuna. Í síðustu viku var ég að koma krökkunum í háttinn og hann var niðri að taka til dótið eftir okkur. Þegar ég kom niður þá sagði hann "ég horfði yfir stofuna áður en ég byrjaði og hugsaði rosalega er mikið drasl/ dót út um allt hjá okkur alltaf hreint" Meðan ég tók saman dótið fyllti alla dótakassa og raðaði stóra dótinu þá fór ég að hugsa.... Það er ekki drasl hjá okkur þetta er bara vísir á hamingju. Ég bara ha.... hann sagði já allt þetta dót sem þið hafið verið að leika með sýnir bara að það hefur greinilega verið mjög gaman hjá ykkur í dag.... og mikil hamingja og gleði. Jáhá ég er sko alveg sammála honum, það var búið að vera alveg rosalega gaman hjá okkur. Þegar ég er að fussa og sveija yfir einhverju drasli hjá okkur þá minni ég mig á að þetta sé nú bara hamingja... eintóm hamingja :)