Wednesday 28 December 2011

2011 verður 2012

Árið 2011

  • Hefur verið okkur svo lærdómsríkt á margan hátt við eignuðumst okkar annað barn og upplifðum við alla þá gleði sem fylgir því að bjóða nýjan einstakling inn í þennan heim.
  • En á nokkrum mínótum þá héldum við að heimurinn hefði hrunið og upplifðum við þá sorg sem maður upplifir þegar maður fær fréttir um að eitthvað sé ekki eins og það "á" að vera.





  • Við fórum í gegnum biðtíma sem gerði okkur samheldnari og sterkari
  • Við grétum og hugguðum hvort annað

  • Við fögnuðum heilbrigðu hjarta, sjón og heyrn
  • Við settum spurningamerki við það hvað sé fullkomið

  • Við glöddumst yfir góðum árangri í vinnunni
  • Við hættum að hugsa of mikið framm í tímann
  • sáum að það er gott að eldast, fögnuðum stórafmæli og glöddumst í giftingu

  • Hlóum og grínuðumst með hluti sem við héldum að við myndum aldrei gera
  • Við upplifðum alla þá gleði sem fylgir því að fagna litlu hlutunum í lífinu... eitt lítið bros :)

  • Við fögnum heilsunni á annan hátt og þökkum fyrir það að við séum heilbrigð á þann hátt að okkur líði vel. Og þökkum fyrir það að fólkið okkar hafi góða heilsu.
  • Við glöddumst yfir nýjum tækifærum
  • Breyttum til og lærðum nýja siði...



  • sáum Andreu læra hjóla

  • Þökkum fyrir gott heilbrigðiskerfi
  • Við heyrðum litlu stelpuna okkar tala enn eitt tungumálið.

  • erum þakklát á hverjum degi fyrir hvað við erum heppinn
  • nutum tímans sem við fengum með fjölskyldum okkar











  • Fengum sól og 25 + í lok sept byrjun okt

  • Eignuðumst nýja vini og endurnýjuðum kynni við gamla
  • Fórum á okkar fyrstu og kannski síðustu Halloween göngu :)

  • Nutum vetrarfrís í skólanum hennar Andreu 

  • Fengum smá foreldrafrí



  • Kynntumst Sint Niklas og svartapétri hjálparanum hans

  • Fengum góða vini í heimsókn


  • Nutum jólanna með fjölskyldunni og borðuðum gott

Árið 2012 ætlum við að fagna og bjóða velkomið til okkar með yndislegum vinum, elda kalkún í fyrsta skiptið og senda af stað lítinn loftbelg að Belgískum/Hollenskum sið :) og jafnvel sprengja smá ragettur að íslenskum sið ;).
2012 verður vafalítið fullt af óvæntum hlutum bæði sem eiga eftir að veita okkur ómælda gleði og jafnvel hlutum sem gefa okkur fullt af nýjum áskorunum.
Gleðinlegt nýtt ár og munum að njóta ekki þjóta :D.


Tuesday 27 December 2011

Öll í fríi :D

Hér erum við loksins öll í fríi, alveg hreint yndislegt. Við nutum gærdagsins í botn og bara vorum á náttfötunum framm eftir degi, sváfum og borðuðum gott. Eftir leikinn á annan í jólum þá fékk Óli langþráða nokkra daga frí. Andrea er í skýjunum að pabbi sé með henni í fríi og spyr reglulega hvort hún sé að fara í skólann á morgun eða pabbi í vinnuna. Svo verður hún alltaf jafn glöð þegar við segjum nei við erum í fríi núna öll saman :D. 

kommst í jólatréð
Hjálpsöm
sprellari
Kleinu baksturs kellingar :D
Hár tosarinn mikli
Verið að æfa sig að standa




















Jólinn voru æðisleg og áttum við frábærar stundir með fjölskydlunni og náðum meira að segja að smala í eitt stykki fjölskylduboð. Já þetta fjölskyldu boð var ekki haldið í Kristniboða salnum;) heldur hérna hjá okkur. Frænka mín sem býr í Köln kom hérna með settið sitt og bróður og tókum við átfest og hlóum saman. 

Andrea var stórkostleg á aðfangadag, mig var farið að kvíða smá hélt hún myndi vera alveg trillt yfir pökkunum. En nei nei hún var hin "rólegasta" ef svo má segja. Jú jú hún spurði reglulega hvenær við myndum opna pakkana og svo bara beið hún. En svo þegar koma að því að opna þá var hún orðin ansi spennt og ætlaði held ég að tætast í gegnum alla pakkana á saman tíma. Viktor sat í fanginu á ömmu sinni og bara skildi ekki neitt í neinu hahahah....

Núna ætlum við að halda áfram að njóta...
yfir og út í bili 




Klassískur hártosari og pabbinn að reyna að fá Andreu með á mynd
 

trillingur
rólegheit

þvílík gleði

og meiri rólegheit
s


Friday 16 December 2011

Undomestic goddess.....

Já það mætti sko alveg segja það þessa dagana, því miður :( En Viktor hefur núna síðustu vikuna verið veikur með rosalega mikinn hósta og kvef. Hóstandi alla nóttina, okkur öllum til mikils ama og svefnleysis.... og ofan í þessi herlegheit þá er hann komin með eina tönn. Ég skildi ekkert í því á laugardaginn síðasta að ég mátti bara ekki láta litla karlinn frá mér og fann svo sökudólginn hægra meginn í neðrigóm :). 


Hér gleðjumst við yfir öllu því litla sem gerist og ætti tönninn svo sem að vera gleðiefni útaf fyrir sig hahahaha  Börn með downs heilkennið fá oft ekki tennur fyrr en 1 árs..... En þessi tönn er sko búin að vera þvílíkt erfið. Litli karlinn er búin að vera í voðalegum þjáningum núna í ca þrjá daga, en í dag er hann ekki með hita og er aðeins líkari sjálfum sér. Viktor er því bara bráðþroska ;) miða við systur sína sem var 9 mánaða þegar hún fékk fyrstu tönnina sína:). Ég man nú alveg að þetta var vont hjá Andreu en ekki svona... en það er líka sagt að eftir því sem þau eru eldri því minna finna þau fyrir tanntökunni. Andrea fékk eiginlega fyrstu 4 tennurnar á einum mánuði.... svo mig er farið að kvíða smá fyrir næsta mánuðinum ef þetta er framhaldið hahahah :D Nei nei við tökum þessum skessum eða grílum eins og Óli vill kalla þær opnum örmum.

Viktor fékk líka að hitta Sint Niclas

En já vegna þessa veikinda og tanntöku þá hafa jólagjafa kaup, bakstur og þrif aðeins setið á hakanum. Við erum að fá fjölskylduna til okkar á sunnudaginn og átti að vera búið að gera svona flest en með þessu áframhaldi þá verð ég vonandi búin að ná að henda hreinu á rúmmin fyrir gestina hahaha:) Nei nei þetta ætti að reddast kannski ekki alveg eins og planið var en við eigum alveg öruglega eftir að eiga mjög gleðileg jól öll saman. 
Ég veit ekki hvort að minn hreinlætis heimilis standard sé íslenski standardinn eða bara minn, þrifið einu sinni í viku og þvottur bara þveginn þegar okkur hentar. Belgíski standardinn er allavegana allt öðruvísi. Hér er þrifið oft 2-3 í viku, það er alltaf einn strau dagur (hér er allt strauað) og þegar veður leyfir þá er það gert í bílskúrnum og hann hafður opinn... hahaha. Já ég velti því fyrst fyrir mér hvort að það væri svona jáhá sjáiði ég er að strauja... en þetta virðist vera lenskan hér:). Konurnar eru líka oftast með svuntu.... já ég hef ekki alveg komist inn í það. Finnst það smá ömmó... Svo má ekki gleyma garð vinnunni, hér verður að slá og hreinsa beðinn reglulega annars ertu litinn smá hornauga. Nágranninn okkar er rosalegur og heldur Óli því framm að hann sé skrúðgarða meistari og hefur komist að því að hann hefur ekki mörg önnur áhugamál en garðinn sinn. (Hann slær hann eins og um væri að ræða Emirates völlinn). En mjög viðurkunnulegur gæji enga síður;) og einusinni þegar hann var að bardússa í garðinum þá tók hann eftir því að það voru tvö rauð tré í runnanum okkar við grindverkið á milli lóðanna og bauðst til þess að skipta þeim út því hann ætti auka :D jáhá ég þakkaði auðvitað bara fyrir það.... og er bara með græn tré núna við grindverkið. Var reyndar ekkert búin að taka eftir því að það væru einhver rauð tré hjá okkur ;)

En já við getum þá þakkað fyrir að við séum að ala Andreu upp í þessu umhverfi eða hvað..... hún er að minnsta kosti búin að læra alveg heilan helling. Eins og hún sýndi mér þegar ég fór með henni í skólann um daginn.


Upprennandi straujari;)




Ég fór alls ekki svöng úr þessu kaffiboði:)

Annars fengum við yndislega heimsókn frá Íslandi, vinur hans Óla hann Kristján og fjölskylda. Var mikið fjör því þau eiga litla stelpu sem heitir Karen Fjóla og er hún mánuði yngri en Viktor. Viktor og Karen voru reiknuð upp á sama dag, áttu bæði að fæðast 24. apríl. Viktor kom 4 vikum fyrir tímann og Karen nokkrum dögum of seint ;)
Æðibitar :D
Íris kannski færðu svona næst ;)


Alveg með þetta...

Þessi stóri töffari er farinn að sitja og gengur það bara vel, er svona að mastera það að koma sér úr því að sita og á magann. Svo er hann ógurlega pirraður yfir því að hann fer bara afturá bak en ekki áfram þegar hann "skríður" :D Fer ýmislegt en það fer hann allt í bakkgír ;)



Bless í bili
og gleðilega hátíð
s