Sunday 7 April 2013

Afhverju ætti hann ekki að vera fullkominn!

Ég verð stundum svoldið leið/pirruð/sorgmædd/hissa hvernig viðbrögð ég/við fæ/fáum þegar fólk veit að Viktor er með down heilkennið. Þá er ég ekki að tala um spurninguna sem margir spurja hvort við vissum þetta og hvort við fórum í hnakkaþykktar mælingu.

Heldur þá hef ég verið vör við það að stundum finnst fólki svo skrítið að við eigum barn með downs... þá hefur það verið annað hvort að fólki finnst við svo ung. Því það halda margir að "eldri" foreldrar eignist bara börn með down heilkennið.  Núna hefur samt aldur foreldra sem eignast börn með down færst töluvert niður þar sem að hnakkaþykktarmælingin tekur einmitt aldur inn í líkindamat sitt og því yngri sem þú ert því "minni" líkur.. og eiga því yngri foreldrar að vera "skotheld"...

Einnig hef ég líka verið vör við það að þar sem að Óli spili fótbolta þá finnst þeim þetta voðalega skrítið.... hhah já eins og það hafi eitthvað um þetta að segja. Já og annað skoplegt var þegar vinkona okkar var að segja annari konu frá okkur og sagði hún.... ha þau ... erum við að tala um þau þarna (Óli og sibba) sem giftu sig í fyrra og voða happí bara.... jáhámm. Eins og það hafi eitthvað um þetta að segja. Við fengum líka spurningu um daginn hvort við hefðum einhvern tíman hugsað það að gefa Viktor upp til ættleiðingar..... ég fæ sting í hjartað bara við að skrifa þetta.... mér finnst þetta bara svo ótrúleg spurning. Finnst svo skrítið að fólk haldi að útaf því að lítill einstaklingur fæðist inn í þennan heim með einn auka litning... að maður vilji gefa hann til ætleiðinga. Þessi einstaklingur er jú hold foreldra sinna og einmitt fullkomin eins og hann er, með öllum hans litningum. Var ég því einstaklega ánægð með fyrirsögnina í blaðinu hérna í Belgíu, "Afhverju ætti Viktor ekki að vera fullkominn".
fínasta fjöllu mynd en Freyja Líf á garginu haha


Þegar við höfum verið beðin um að fara viðtöl þá höfum við viljað vanda vel til því við viljum að þetta komi allt saman rétt út. Ég er mjög ánægð með viðtalið sem við gerðum við Fréttablaðið um jólin og svo fórum við í viðtal hérna í Belgíu í síðustu viku, við eitt stærsta sport fótbolta blaðið hér. Er ég einmitt mjög glöð og stolt af því að fara í þessi viðtöl til þess að einmitt leiðrétta svona viðbrögð eins og ég tala um hérna að ofan. Og eins og Thelma vinkona mín sagði þegar ég var að hrósa henni fyrir flott viðtal í Ísland í dag á alþjóðlega down heilkennis deginnum, bara svo gaman og gott að sýna fólki hversu flottir yndislegir einstaklingar þetta séu þó svo það sé jú einn auka litningur :)



Annars erum við bara glöð hérna, Viktor er vonandi að hressast og getur því vonandi farið að fara reglulega í leikskólann. Hann er sannkallaður gullklumpur og getur maður gjörsamlega étið hann eins og við íslendingar orðum það..... alltaf að bralla eitthvað nýtt. Einstaklega hjálplegur að "taka til" eða ekki.... Núna er hann á tímabilinu "einmitt það sem mig vantaði" eins og fjölskyldan mín orðar það... tekur peysu eða bol eða bara hreinan þvott og druslast með hann í lengri tíma og alltaf að setja yfir hausin á sér eða svona yfir axlirnar.

Hann er farinn að borða aðeins meira sjálfur sem er alveg yndislegt. Kom auðvitað sjálfstæðis tímabil hjá honum en svo var eins og honum þótti bara þæginlegra að láta mata sig og hann hreinlega þver tók fyrir að gera sjálfur hahaha... 

Hann er algjör gleði pinni og mjög svo athyglis sjúkur hahaha finnst ekkert skemmtilegra en að vera með atriði og klappar mest fyrir sér sjálfur og er alltaf að passa að við hin séum að horfa :D



Ég reyndi svo núna fyrir páska að kaupa blóm og setja í vasa, hann var fljótur að fatta að þarna var eitthvað meira spennandi en allt heimsins dót. En eftir mikið nei má ekki og ekki fært vasann þar sem ég hafði fengið góðar leiðbeiningar frá henni "blóma" Ásu vinkonu minni að þetta yrði bara ekkert spennandi in the end :D Þessir fínu túlípanar lifðu sínu lífi fallegir og óáreittir. En svo komu nýjir túlípanar...... eitthvað fannst honum þeir meira áhugasamir en lét þá eiga sig fyrst um sinn. Svo skildi ég ekkert í því að mér fannst blöðin eitthvað vera að detta of fljótt af þessum annars fínu túlípönum. Þegar ég kem svo inn í stofu og stend sökudólginn glóðvolgann í því að reyna að fela sönnunargögnin.... já þessi litli gormur var að reyna að stíga ofan á sitthovort blaðið sem hann hafði reitt af og kremja annað í hendinni. Skömmustulegri en allt í framan og horfði svo með hvolpa svip á mömmu sína þegar hún byrjaði að skamma hann og neðri vörinn fór á fullt. Ég átti mjög erfitt með mig að reyna að halda andliti þarna þegar ég var að skamma hann hahahaha

Við reynum svo að gefa stóru systir smá kvolití tæm þegar hin eru sofnuð eða alla vegana bróðir hennar. Höfum á föstudögum eða laugardögum haft svona video kvöld og valið allskonar skemmtilegar myndir. Mamman hefur staðið fyrir stelpu deildinni og við horfðum á Mary Poppins og Sound of music og svona skemtilegt :) og pabbinn alveg hrotið yfir því vali. Fékk því húsfaðirinn að velja á föstudaginn og valdi hann Mrs Doubtfire. Yndisleg mynd í alla staði og fannst Andreu hún ansi skemmtileg og hlóum við ansi mikið og þá sérstaklega pabbinn :)..... eða þangað til að Andrea spurði okkur hvað þetta hérna þýddi og skellti í eitt merki með hendinni..... Já þetta þar sem langatöng vísar upp og hinir tveir fingurnir þar við hliðiná eru hálf bognir.... Hahahaha ég dó næstum úr hlátri og Óli fór alveg í kleinu og sagði ha hver gerir svoleiðis? Hún labbaði að sjónvarpinu og sagði að hann (Mrs Doubtfire) hafi bara verið að gera svona!! Óli alveg rauður og blár reyndi að eyða þessu eins pent og vel og hægt var. Ég hló mikið og sagði bara við hann gott val á mynd hahahahha :).


Freyja Líf hefur svo fengið viðurnefnið Súómí frá afa sínum þar sem að hún þyngist og dafnar vel og voru systkini hennar jafn þung og hún er núna þegar þau voru mánuði eldri hahaha. Kannski ekkert skrítið þar sem að hún fæddist heilu kílói þyngri en þau :D.

þangað til næst
S

4 comments:

  1. Það er alveg hægt að borða gullklumpinn, líf og fjör hjá ykkur hahaha! Það sem fólk getur látið út úr sér, þetta fer alveg yfir öll mörk. Alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt elsku vinkona, hlakka svo til að hitta ykkur í sumar. Freyja er að dafna svo fallega, litla Yndið :) knús Erla og gússurnar

    ReplyDelete
  2. Alltaf svooo gaman að lesa pistlana þína mín kæra:) Mikið hefði ég viljað sjá þegar hvolpasvipurinn kom upp eftir að hann vaar "gripinn" í túlípönunum ahahahhaah sé hann alveg fyrir mér.

    Mrs. Doubtfire stendur alltaf fyrir sínu og sniðugt hjá ykkur að búa til svona kvöld fyrir stóru systur:) Svo falleg myndin af þeim systrunum saman.

    Freyja Líf blómstrar greinilega vel og hún virkar allt annað eintak en hin 2. Mér finnst hún bara alls ekki lík þeim eða eru myndirnar að blekkja??
    Falleg er hún eins og þið öll:)

    Mikið hlakka ég til að sjá nýju vinkonu mína í sumar. Við fáum vonandi gott veður svo við getum tekið göngutúra saman:)

    Love,
    Svanhvít.

    ReplyDelete
  3. Þetta eru heimsins bestu pistlar Sibba og myndirnar eru æði, en myndefnið er með eindæmum fallegt !!! Mér finnst svarthvítu myndirnar geta verið myndir úr bíómynd og þær snerta mig alveg inn að hjartarótum.

    Börnin ykkar eru svo einstaklega vel heppnuð, svo skemmtileg og falleg og þau hefðu ekki getað valið sér betri foreldra.

    Ég hlakka til að sjá ykkur sem fyrst og það væri gaman að hittast og leyfa strákunum að leika saman í sumafríinu. Er það ekki ? :-)

    One luv til Belgiu <3
    Knús frá blómakonunni :-)

    ReplyDelete
  4. Takk elskurnar mínar :D Ég get hreinlega ekki beðið eftir að hitta ykkur allar í sumar.... og Svanhvít við verðum geggjað kúl með tvíbura kerrurnar ;);) og Ása ekki spurning verðum að hittast og leyfa þeim að leika sér saman :)
    Svanhvít mér finnst A og FL mjög líkar þegar þær sofa... nema náttúrulega A svaf ekki mikið hahah Svo þegar FL opnar augun finnst mér hún alveg nýtt eintak... en ef maður skoðar myndir af A og henni þá eru þær smá líkar ;)

    kossar og knús á ykkur og takk fyrir að kommenta ... svo ógurlega gaman :D

    ReplyDelete