Tuesday 17 April 2012

Tannálfur

Mikið fjör þessa dagana þar sem að það eru þrjár tennur að koma niður á sama tíma. Eftir að ein leit dagsins ljós í síðustu viku þá tók ég eftir því að það voru þrjár nýjar á leiðinni niður þegar ég fór að skoða ástæðu pirrings klumpsinns. Vinstri framtönninn uppi lætur ekkert sjá sig... hahaha þetta er smá fyndið og vona ég innilega að hún fari að koma í leitirnar, því það verður vafa lítið mjöög fyndið ef hann verður komin með allar tennur í kringum þessa einu en ekki hana ;)

Svo hafa ansi strangar æfingabúðir staðið yfir meðan amma og afi voru hér, í að ganga og verður hann bara pirraður ef hann fær ekki sitt á hverjum degi. Smá erfitt þegar það er svoldið í það að hann geti gert þetta sjálfur;)  Svo er það auðvitað ógurlega pirrandi að hreyfast ekkert úr stað, því að hann hefur ekki masterað það nógu vel að skríða... svo í tannapirring blandast þvílík gremja yfir því að geta ekki skoðað heiminn eins og hann vill ;) Í einum labbítúrnum þá fann hann þennan kassa og ákvað að tilla sér í hann  mér til mikills léttis en það tók hann nú ekki langan tíma að fatta að þetta væri nú ekkert sérlega skemmtilegur kassi ;)


En það er alltaf svoo stutt í brosið hjá þessari elsku:D.

Bestu frá Belgíu
s

2 comments:

  1. Hann er svo mikið yndi! ...og systir hans líka :) Knús á ykkur :*

    ReplyDelete
  2. Oh hann er svo mikið æði :)

    ReplyDelete