Wednesday 28 March 2012

Hvað er normal/fullkomið??

Eftir að Viktor kom í heiminn þá hef ég velt því svolítið fyrir mér hvað er fullkomið eða hvað er normal... venjulegt... óvenjulegt. Ég finn það að fólk veit stundum ekki alveg hvað það á að segja við mig... verður smá vandræðalegt.... og oftast þá bara spái ég ekkert í því og reyni bara að koma fólki frá því að hafna þarna með einhveri skemmtilegri athugasemd eða hnittni. Stundum pirrar þetta mig alveg smá og ég bara ohhh æ afhverju getur fólk ekki bara hætt að horfa á það að hann sé kannski smá öðruvísi... og horft á hann eins og hann er. Ég hef líka sagt við fólk já hann sonur minn... er náttúrulega fullkominn og hlegið... fólk horfir alveg á mig hmmmm veit ekki alveg hvernig það á að taka þessu :) Svo bæti ég oft við... já hann sefur eins og engill hingað til á næturnar.... Andrea dóttir mín svaf ekki heila nótt fyrr en 14 mánaða..... Er það normal????


Ég á litla vinkonu sem heitir Ragnhildur Fjóla hún er einmitt fædd smá öðruvísi..... þegar hún fæddist þá var annar þumalinn hennar visinn og þurfti því að taka hann af. Hún var þreytt eftir hraða fæðingu og þurfti að fara í hitakassa og á vökudeild. Mamma hennar fékk aðeins að sjá hana í nokkrar mínútur áður en hún var tekin frá henni og hún vissi ekkert hvað var í gangi. Læknarnir sögðu við foreldrana að það væri kannski ekki allt í lagi.... þau voru eiginlega búin að fatta það þegar þau komu inn í viðtalsherbergið því þar sat prestur..... Þeim var tilkynnt að þetta væri líklegast charge heilkenni og væri ekki vitað hvort hún ætti eftir að sjá eða heyra......
Litla Ísland tók þessa frétt eins og hvirfilvindur og fór þetta manna á milli....
Í dag er Ragnhildur Fjóla að verða eins árs... og já hún er bara með einn þumalputta en Hún borðar Cherios eins og enginn sé morgundagurinn með hendinni sem á vantar þumalinn.... hún raðar hringjum upp á mjóa spítu (dót sem heitir stacking rings á ensku) og hendir kubbum í fötu og tekur þá uppúr eins og þetta sé allt saman að fara úr tísku. Hún horfir á mig og brosir þegar ég geri eitthvað fyndið..... svo hún sér mig ;) Þessi snillingur klappar þegar mamma hennar stendur í eldhúsinu og segir Ragnhildur klappa.... hún teygjir sig himinhátt upp í loftið þegar maður spyr hana hversu stór hún sé og svo tosar hún sig upp á allt og labbar með :D Hún er eldklár og alveg með hlutina á hreinu, mömmu stelpa út í eitt og farin að sýna pabba sínum hver það sé sem ræður ;)


Vonandi að þessi bloggfærsla mín fari eins víða og fyrri sagan því að næst þegar einhver spyr um þessa litlu stelpu og vísar í hina söguna þá urra ég ;) hún er eins fullkomin og hægt er að vera, augasteinn foreldra sinna, fjölskyldu og Vina.



s

7 comments:

  1. Elsku Sibba takk fyrir yndislegt blogg um litla molann minn! Þau eru flottust þessi tvö!!!

    Vona að fólk fari að hætta að blaðra eitthvað um litla gullið mitt sem er ekki rétt!
    Knús og kram!
    Ólöf Xxx

    ReplyDelete
    Replies
    1. Elsku Ólöf mín var skooo ánægjan... fannst bara aðeins þurfa að monta mig á vinkonu minni ;)

      Delete
  2. Yndislegt blogg ;) Þekki þig ekkert , en þekk aðeins Ólöfu mömmu hennar Ragnhildar og langaði aðeins að kommenta hér , því eg hef verið að fylgjast aðeins með og hún Ragnhildur Fjóla er ekkert eðlilega falleg & fín prinsessa , hún er alltaf svo flott & fín ;) Gaman að sjá þetta blogg hjá þér , því það er leiðinlegt þegar talað er um e-ð sem er ekki rétt.
    Ragnhildur Fjóla er á svipuðum aldri og dóttir mín og þær eru að gera nákvæmlega sömu hlutina , klappa, labba með, brosa og hlæja ;) Gaman að lesa hvað hún dafnar vel , og vona innilega að það berist vel út ;) Alltaf gaman að heyra e-ð jákvætt ekki bara tala um neikvæða hluti ;)
    Á lítil frænda sem fæddist með samvaxnar tær/ en viti menn , hann er með þeim bestu á fótboltaæfingum ;) við erum öll misjöfn ! ;) sem betur fer ;)
    Gangi ykkur öllum súpervel í útlandinu ;)
    Kveðja Rebekka & Sigríður Ísey

    ReplyDelete
  3. Vá, hvað þetta er flott blogg hjá þér Sibba. Það er sko engin spurning að hún Ragnhildur Fjóla er langflottust og er alveg rosalega dugleg. Sjúkdómurinn er jú til staðar, en allt svo miklu betra en maður fékk að heyra í fyrstu. Hín er algjört kraftaverk foreldra sinna þessi stelpa og er algjör augasteinn í lífi okkar allra, bestu kveðjur frá Íslandi Fjóla Jónsdóttir. (mamma Nonna og amma þessarar fallegu og duglegu stelpu sem að ég er svo montin af )

    ReplyDelete
  4. Hæ, datt inná bloggið þitt og er búin að sitja með límd við skjáinn að lesa öll skrifin þín, frábær penni, flott blogg. Innilega til hamingju með fallegu gullmolana ykkar. Kveðja Kitta

    ReplyDelete
  5. Yndislegt blogg eins og öll hin bloggin þín elsku Sibba.. það er algjörlega mannbætandi að lesa það sem þú skrifar !!

    En svo eru bæði Viktor Skúli og Ragnheiður Fjóla alveg sérlega falleg börn sem hitta mann beint í hjartastað... hjartað tekur alveg kipp..

    Knús yfir til ykkar í Belgíu xxx

    ReplyDelete
  6. Við erum jafn mörg og við erum misjöfn :) Kúturinn minn er með annað augað útum allt þó hann sé orðinn á 5 árinu og það finnst mér svo sjarmerandi :)Hann á sko eftir að heilla skvísurnar með sínu flotta blikki ;) Ég hef séð myndir af þessari fallegu rófu á fb hjá ömmu hennar og finnst hún svo gordjös eins og öll börn! :) Eigið gleðilega og góða páska :)

    ReplyDelete