Wednesday 31 August 2011

Urrandi skemmtileg.....

Á mánudaginn þá leið mér svo skringilega.... skildi ekkert í þessu var nú ekki veik en samt eitthvað skrítin. Ég vaknaði í gær alveg hreint öfugsnúin og skildi bara ekkert í mér. Við fjölskyldan tókum okkur til fyrir læknistíman hans Viktors og svo ætluðum við að fara á veðreiðarnar. Ég hélt uppteknum hætti áfram var pirruð við Andreu og fór svo alveg með það þegar ég sá að við gleymdum peysu á Andreu..... hmmm urraði alveg á Óla..... Við komum okkur inn á spítalann, fengum þær upplýsingar að við þyrftum að fara í skráningar herbergið og fengjum þar áframhaldandi upplýsingar. Þegar ég settist þar niður þá bað ég elskulegan manninn minn afsökunar og reyndi að slaka á ..... Þegar að kom að okkur þá var konan ekki alveg að fatta að við værum tiltölulega nýflutt til Belgíu og værum þar að leiðandi ekki með tryggingakort og svo framveigis... hún var fruntuleg fannst mér og þegar mér finnst fólk vera þannig þá fer ég öll í kerfi. Á endanum fengum við okkar miða og upplýsingar hvert við ættum að fara. Við löbbuðum inn langan gang og fylgdum rout 4 ..... hnúturinn sem hafði líklegast byrjað að myndast á mánudeginum þegar mér fannst ég "skrítin" varð eins og stór bolti í maganum á mér.... og var á leið upp í kok. Þegar við komum að ritara læknisins þá fengum við þær upplýsingar að tímin okkar hafi verið kl 14 og nú væri klukkan 15.....  Við útskýrðum að þetta væri líklegast einhver miskilingur því að heimilislæknirinn okkar hafi sagt við okkur að tíminn væri kl 15. Ritarinn sagði okkur að setjast niður í biðstofuna hún ætlaði að tala við læknin og sjá hvað hún gæti gert.....
Við settumst niður og ég bara hreinlega barðist við að fara ekki að grenja... horfði upp fékk mér smá göngnutúr og var sem lengst frá Óla og Andreu... Það eru kannski ekki margir sem skilja þetta en fyrir mér var þessi tími ákveðin tímamót... já eða bara svona að koma ákveðnum hlut út úr kerfinu....  Ég vildi bara fá að vita að þessar tvær holur væru grónar... og halda áfram að njóta litla pungsins....
Eftir smá bið þá kom læknirinn yndælis kona, hún sagði að hún gæti því miður ekki skvísað okkur inn í dag nema ef að næsti sjúklingur kæmi ekki.... við biðum aðeins lengur og gáfum henni skírslurnar hans Viktors. Eftir enn lengri bið fengum við nýjan tíma á föstudaginn..... þau voru heldur þung skrefin sem ég tók að bílnum.... á eftir trítlaði Andrea og Óli.

Það var svipað  þegar ég þurfti að ná í læknaskríslurnar hans Viktors áður en við fluttum frá Danmerku. Ég kom hálf hlaupandi og grenjandi út úr sjúkrahúsinu í Kolding.... hef mikið velt því fyrir mér hvers vegna mér líður svona þegar ég fer inn á spítala eftir fæðingu Viktors...

Hef komist að nokkrum niðurstöðum, við þurftum að sjálfsögðu að vera lengur inn á sjúkrahúsinu eftir að Viktor fæddist en þegar Andrea fæddist og þurfti ég að umgangast og hitta mikið af læknateymi.
Allir hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar ( alveg frá því að ég fór fyrst upp á spítala) voru yndislegar.... en eiginlega allir læknar sem ég hitti voru að mínu mati bara alveg hræðilegir..... Fæðingalæknirinn hreytti í mig að ég gæti sko alveg fætt þennan dreng sitjandi.... og að grindargliðnun væri sko ekkert tengd sitjandi fæðingu... Læknirinn sem útskrifaði mig skoðaði mig og svo fór hún að spurja mig hvernig ég hefði það. Var forvitinn eins og allir hinir... já eða vildi vita hvernig við værum að taka þessu andlega.... ég reyndi bara að vera jákvæð eins og við höfum alltaf verið í þessu og eins og við ákváðum alveg frá byrjun. Ég sagði bara að við ætluðum ekki að fókusa á það neikvæða og hugsa um það slæma heldur að vera jákvæð og fókusa á það í öllu sem við værum að fara inn í núna. Það er nú nefnilega þannig að ef maður fókusar á það neikvæða þá verður allt svo erfitt..... En já þegar ég var að segja þetta við hana þá sagði hún við mig..... jáhá en þú verður nú samt að muna að þetta er erfitt og verður það...... og þú mátt alveg sparka í stein og gráta... Sem er jú alveg rétt að hluta en mér fannst bara eitthvað svo skrítið að hún myndi ekki bara kvetja mig í því að vera jákvæð og auðvitað mátti hún alveg benda mér á það að þetta gæti orðið erfitt.... en ekki bara fullyrða.

Sérfræðingurinn sem við hittum já...... hún var hvað getur maður sagt... já við Óli ákáðum allavegana eftir fyrsta skiptið sem við hittum hana að hún hafi átt alveg hreint mjög slæman dag. Hún hreytti svona eiginlega í okkur að við gætum sko búist við því að það væri mikið að breytast í okkar lífi núna þegar Óli var eitthvað að spyrja sambandi við tal og tungumál í ljósi vinnunar hans. (eins og við hefðum ekki gert okkur grein fyrir því ) Og svo kom auðvitað runa af öllu því sem fylgir Down´s heilkenninu.... og því miður var það allt það neikvæða. Þegar við hittum hana næst þá var hún jú öllu skárri en aldrei á þessum nokkrum skiptum sem við sáum hana eða einhvern annan sérfræðing þá var það alltaf bara hmm já og hmm hitt og allt voða dipló. Ég var alvarlega farin að hugsa hvort að það væri nú bara þannig að eftir því sem fólkið í heilbrigðisstéttinni lærði meira því minna mannleg væru þau.... eða hefðu þau lesið svo mikið og gleymt að læra að tala við fólk.... eða var ég kannski bara svona voðalega óheppin?!

Það var ekki fyrr en við komum til Íslands og hittum Ingólf barnlækni og sérfræðing í fötlun barna að við fengum að heyra eitthvað jákvætt um litla gullmolan okkar... :D Já það er svo nauðsynlegt.... þó svo að við vitum vel að hann er flottastur:).
Ingólfur sagði strax við okkur að hann væri með mikla vöðvaspennu.... sem er mjög gott fyrir börn fædd með Down´s því að þau eru oft mjög slöpp....... Ég bara skil ekki afhverju einginn gat sagt þetta við okkur fyrr .... hvað þetta gladdi okkar hjörtu.... já og svo sagði hann margt annað svo jákvætt og það var svo gott að tala við hann. Við eigum eftir að vera í sambandi við hann og alla á greiningastöðinni þegar við komum heim.  Og tala nú ekki um allt yndislega fólkið sem við hittum hjá þroskahjálp.

Gerður hjá þroskahjálp sagði svoldið við okkur þegar við sátum og spjölluðum við hana í sumar sem hefur setið í mér. Hún sagði að þegar hennar sonur hafi fæðst þá hafi hún spurt aðra konu sem átti líka dreng með Downs hvenær hún hafi hætt að hugsa um þetta allan daginn... eða þegar hún vaknaði þá hugsaði hún um þetta og þegar hún fór að sofa... Ég hugsaði um þetta þá og velti því fyrir mér hvort ég væri komin yfir það.....
Þegar ég var alveg að sofna í gær þá bað ég Óla fyrirgefningar en sagði honum svo að þessi spítlaför hafi verið svona smá skvetta... því að það hafi bara verið svo yndislegt að síðustu vikur og mánuði þá hafi við bara verið í "venjulegu" lífi... ég vissi vel að litli pungurinn okkar væri með Downs en ég væri bara ekkert að hugsa um það dags daglega. Við vöknum og höldum okkar rútinu að sjálfsögðu fer ég með hann í sprautur og annað alveg eins og ég gerði með Andreu. En þegar það komi að svona spítala sérfræði tímum þá bara fari ég smá úr ballans því ég bara vil að litla hjartað sé í lagi og glatt :D og já auðvitað þá hef ég verið alveg ógurlega óheppin ætla ég að vona með lækna og spítala.... og líklegast gæti ég þurft smá hjálp með þessa fóbíu mína...

bless í bili
S
fimm mánaða broskall ;)

11 comments:

  1. Flott hjá þér og gaman að lesa Sibba mín :)

    ReplyDelete
  2. Þú ert svo dugleg elsku frænka mín og mér fannst svo frábært hvað þú varst yfirveguð og dugleg að sjá það jákvæða þegar ég hitti þig í sumar. Það er alltaf erfiðara vera í útlöndum þegar börnin manns þurfa aðstoð, erfiðara að tjá sig því það er ekki bara tungumál heldur líka nýr hugsunarháttur og önnur menning sem maður þarf að díla við (sem mér finnst persónulega erfiðara að læra en nýtt tungumál). Mér finnst þið bara alveg ótrúlega dugleg og Viktor og Andrea blessuð að eiga svona frábæra foreldra :) Guð geymi ykkur og gefi ykkur styrk til að aðlagast og takast á við allt saman. Knús frá Helgu frænku

    ReplyDelete
  3. ég tárast bara..þú ert æði Sibba mín :) litli 5 mánaða broskallinn er alltaf svo kátur og hamingjusamur enda á hann yndislega og skemmtilega fjölskyldu :) knús til ykkar og gangi ykkur vel í næstu heimsókn, taktu þetta bara á jákvæðninni, það er best!
    Erla

    ReplyDelete
  4. Alveg sammála Helgu frænku... þú ert algjör atjarna stóra syss og börnin þín eru heppin að eiga svona góða mömmu... Ég hlakka svo til að sjá Viktor stækka og þroskast að ég get varla beðið ;)
    knús á ykkur öll..

    ReplyDelete
  5. elsku stóra mín þú ert svo dugleg... er svo sammála það er svo miklu léttara að vera jákvæð... og ég er farin að hlakka svo til okt,nov,des get ekki beðið að fá að knúsa ykkur.
    koss kveðja mamma

    ReplyDelete
  6. Er búin að vera að lesa í morgun allt bloggið næstum því :) Þú ert góður penni og mér finnst pistlarnir þínir fallegir. Haltu áfram að skrifa. Viktor brosir svo fallega á myndinni, það er alveg greinilegt að hann er glaður lítill kútur sem hefur það gott. Fullkominn. Leiðinlegt þegar maður lendir í leiðinlegu fólki þegar maður er á sjúkrahúsum, það er yfirleitt þá sem maður þarf á góðum að halda. Tala nú ekki um ef maður er í útlöndum. Haldið áfram að vera jákvæð. Kveðjur frá gömlu vinkonunni úr Engihjallanum.

    ReplyDelete
  7. Mér finnst rosa gaman að lesa greinarnar frá þér Sibba mín. Að rifja aðeins upp gamla fótbolta tíma og vita svo aðeins meira hvað er að gerast í lífi þínu og bara hjá ykkur þarna úti.
    Það er nú ekkert skrítið að svona dagur taki á eins og þessi á spítalanum. Þetta er nú einu sinni hjartagullið þitt og það er bara eitthvað í mömmuhjartanu sem að tekur við stjórninnu stundum! ...og þó þú þyrftir að vinna á bug einhverja fóbíu þá ertu samt ofboðslega dugleg! Það má líka alveg gráta stundum því auðvitað þarf að þrífa augun einstaka sinnum. En þú ert sterk og jákvæð og verður pottþétt sterkari út af börnunum þínum tveimur.
    Krútt strákur sem að þú átt... og stelpa(sem er feimin við myndavélar )! Gangi ykkur vel hjá lækninum á morgun.
    Knús Eyrún Odds

    ReplyDelete
  8. Æðislegt blogg sem þú ert með. Ég hef ekki upplifað það sem þú ert að upplifa en ég skil svo vel hvernig þér líður og tengi þessa tilfinningarússíbana við hluti sem ég hef upplifað. Ég hef bara séð Viktor á myndum en mér finnst hann alveg yndislegur og Andrea líka. Ég á einmitt einn vin sem er líka með Downs. Hann var að fermast um daginn og hann er með skemmtilegri karakterum sem ég hef kynnst. Ef það er eitthvað að marka foreldrana hans þá er þetta bara yndislegt og þó svo ég ímynda mér að það sé ekki alltaf auðvelt þá verður það örugglega alltaf þess virði. Ekkert er auðvelt sem er þess virði að gera það hvort eð er ;)

    ReplyDelete
  9. Æðislegt að lesa pistlana þína Sibba mín! Þið eruð svo flott og dugleg fjölskylda :) Viktor Skúli svo ofalega sætur eins og systir sín :) Knús knús frá okkur öllum Linda xxx

    ReplyDelete
  10. Elsku Sibba!
    Virkilega gaman að lesa bloggið þitt og sjá hvað þið eruð dugleg að takast á við þetta nýja hlutverk í lífi ykkar. Viktor er alveg yndislegur og hann hefur sko verið klókur þegar hann valdi sér foreldra. Vona að ykkur gangi vel að koma ykkur fyrir í nýju landi (dáist að ykkur) en við söknum ykkar hér í Helsingborg.
    Knús og baráttukveðjur
    Harpa R

    ReplyDelete
  11. Mér líður oft svipað og þú ert að lýsa hérna ;)Ég hef líka valið að fara jákvæðu leiðina hún er miklu skemmtilegri :D
    Kv. Maggý

    ReplyDelete